Föstudagur, 28. nóvember 2008
Kóngakökur
Nú erum við að tala saman,þessar finnst mér góðar Einfaldar að útbúa.
125 gr flórsykur
250 gr smjör
375 gr hveiti
Korn af einni vanillustöng eða 1 tsk vanillusykur
1/2 tsk lyftiduft.
Hnoðað deig. Rúllið í þykkar pylsur og kælið vel í ísskáp. Skerið í sneiðar og raðið á plötu og bakið við 200 gráðu hita í ca 6 mín.
Upprunalega uppskriftin sagði til um að rúlla lengjunum upp úr fyrst eggjahvítu og svo perlusykri en það þótti mér óþarfi og hreinlega skemma kökurnar,sem eru æðislegar með kakóbollanum mhmmm
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkur: Bloggar | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.